Upplýsingar

Upplýsingar fyrir gesti

Kæri gestur — velkominn í Orlofsbyggðina í Ölfusborgum! Hér að neðan eru upplýsingar um húsið, helsta búnað og fylgihluti, ásamt leiðbeiningum varðandi dvalartíma og þær reglur sem mikilvægt er að kynna sér.

Komu og brottfaratímar

Koma frá kl. 16:00 Brottför fyrir kl. 12:00

Snemmbærútskráning

Kort

Kort af svæðinu

Öll húsin í Ölfusborgum merkt með númerum.

1. Dvalartími

Dvalartími
Leigutaki hefur húsið til umráða frá kl. 16:00 á komudegi til kl. 12:00 á brottfarardegi. Viljum við biðja ykkur að virða tímamörk á brottfarardegi, svo umsjónarmenn okkar hafi tíma til þess að yfirfara húsin fyrir komu næstu gesta.
Helstu atriði við komu
Ræstiefni og tuskur eru í körfu á eldhúsborði og áhöld í ræstiskáp. Mikilvægt er að athuga strax hvort helsti búnaður virki. Þar má helst nefna heitan pott, grill, ofn og helluborð. Hlífðarlök eiga að vera á öllum rúmum. Leigjandi kemur sjálfur með lök og sængurföt.
Ef einhverju er ábótavant
Ef eitthvað er ábótavant varðandi umgengni, þrif eða viðskilnað, eitthvað skemmist eða þið viljið koma skilaboðum á framfæri, vinsamlegast látið umsjónarmann vita strax við komu. Gott er að taka myndir af því sem er að og senda á olfusborgir@olfusborgir.is, eða fylla út athugasemdablaðið „Orðsending til umsjónarmanns“. Ef þrifum er ábótavant getur komið til þess að húsið verði þrifið á kostnað leigutaka. Orlofshúsin eru sameign okkar — göngum um þau af alúð og sóma.

2. Umsjón

Umsjónarmaður
Alltaf er hægt að senda tölvupóst á olfusborgir@olfusborgir.is ef einhverjar spurningar eru. Póstum er svarað eins fljótt og auðið er, í síðasta lagi næsta virka dag. Hægt er að ná í umsjónarmann í síma 510 7578.
Símatími umsjónarmanna
Umsjónarmenn eru aðgengilegir á símatíma á eftirfarandi tímum: • Virkir dagar: 09:00–17:00. • Föstudagar: 09:00–20:00. • Laugardagar: 10:00 - 14:00. • Sunnudagar: Lokað. ATH! Rétt er að ítreka að símtöl utan skrifstofutíma, sem ekki flokkast sem neyðartilfelli, verða gjaldfærð á leigutaka.
Vaktsími umsjónarmanns
Ef um neyðartilfelli er að ræða utan símatíma umsjónarmanns eða opnunartíma þjónustuhúss orlofsbúðanna er hægt að hringja í 510 7578. Þar skal velja „samband við umsjónarmann“. Vinsamlegast athugið að hringja einungis í vaktsíma ef um neyðartilfelli er að ræða.  Dæmi um neyðartilfelli:  • Ef húsið er vatnslaust.  • Rafmagnsleysi.  • Stórtjón — t.d. brotnar rúður eða hurðir sem ekki lokast.  Þannig eru minni háttar bilanir (t.d. heitir pottar eða grill sem ekki virka) ekki flokkaðar sem neyðartilfelli og verða leigjendur rukkaðir um kostnað vegna símtala sem ekki varða slíkt).
Neyðarlínan 1-1-2
Við bruna eða alvarleg slys á fólk skal ávallt hafa samband við neyðarlínu 1-1-2. Neyðarlínunni má einnig hafa samband við þegar:  • Líf eða heilsa er í hættu.  • Eldur eða reykur sést.  • Alvarleg meiðsl, slysa- eða veikindatilvik verða.  • Ofbeldi, ógn eða innbrot á sér stað.  • Mikil hætta steðjar að, t.d. vegna náttúruváar.  • Þörf er á tafarlausri aðstoð lögreglu, slökkviliðs eða sjúkraflutninga.  Til að örugg og hröð aðstoð berist skal gefa skýrar upplýsingar um:  • Hver er að hringja?  • Hvar atvikið er? (nákvæm staðsetning)  • Hvað hefur gerst?  • Hvenær atvikið gerðist?  • Hvernig aðstæður eru? (t.d. hvort eldur er mikill, hversu margir eru slasaðir o.s.frv.)  Mikilvægt er að halda ró, svara spurningum viðeigandi neyðarþjónustu og fylgja öllum fyrirmælum þar til aðstoð berst á staðinn.

3. Reglur húsa og orlofssvæðisins

Umgengni
Ganga skal vel um bústaðinn sjálfan, húsbúnað og innréttingar. Vinsamlegast færið ekki hluti úr bústaðnum á milli húsa.
Gæludýr
Gæludýr eru ekki leyfð í húsunum eða á svæðinu.
Hávaði og ónæði
Ró skal vera komin á svæðið kl. 22:00. Eru gestir beðnir um að virða það. Ónæði við aðra gesti getur varðað brottvísun af svæðinu.
Sorphirða
Flokka þarf allt rusl og setja í viðeigandi ruslagáma við þjónustuhús á svæðinu.
Reykingar
Reykingar eru ekki heimilar innandyra.
Vímuefni
Notkun ólöglegra vímuefna er ekki heimil í húsinu. Slík háttsemi mun í öllum tilfellum leiða til brottvísunar úr húsinu og verður tilkynnt til lögreglu.
Óhóflegt skemmtanahald
Skemmtanahald skal vera innan eðlilegra marka. Virða ber reglur um náttúró og friðhelgi annarra í orlofshúsabyggðinni.
Hleðsla rafbíla
Hleðsla rafbíla er með öllu óheimil við orlofshúsin. Hægt er að hlaða rafbíla við þjónustumiðstöð.
Umhverfi
Ganga skal vel um umhverfi orlofssvæðisins. Mikilvægt er að sýna tillitssemi og virða friðhelgi annarra dvalargesta.
Meðferð elds
Öll meðferð elds um svæðið er stranglega bannað.
Bílastæði
Bílastæði eru við þjónustumiðstöð og í útjaðri byggðar. Ekki er heimilt að leggja bílum út á gróður á svæðinu.
Brot á reglum
ATH! Brot á reglum geta varðað brottvísun af svæðinu, sektum og/eða banni á leigu orlofshúsa í Ölfusborgum. Reykingar inni, óhóflegt skemmtanahald og notkun ólöglegra vímuefna eru ekki heimilar í húsinu. Slík háttsemi getur leitt til brottvísunar úr húsinu, synjunar um frekari leigu og, ef við á, tilkynningar til lögreglu. Ef einhverjar spurningar vakna eða þið þurfið að koma á framfæri upplýsingum má hafa samband við umsjónarmann á staðnum á opnunartíma. Orlofshúsin eru sameign ykkar félagsmanna. Góð umgengni er ykkar hagur.

4. Hagnýtar upplýsingar

Helsti búnaður
Húsið er vel búið til almennrar notkunar og inniheldur helsta búnað fyrir 6 gesti. Þar er að finna vel útbúið eldhús, borðbúnað og húsgögn sem stuðla að þægilegri dvöl, ásamt svefnaðstöðu og öðrum nauðsynlegum búnaði fyrir gesti. Ísskápur, bakaraofn, helluborð, örbylgjuofn og uppþvottavél eru til staðar. Stólar eru fyrir 6 manns og 1 barnastóll. Diskar, glös og hnífapör fyrir 6 manns. Þráðlaust net. Gasgrill. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Eitt barnarúm.
Grill
Í hverju húsi er gasgrill, grillbursti og grilláhöld sem leigjendur geta nýtt sér. Mikilvægt er að þrífa grillið vel áður en orlofshúsi er skilað. Best er að hita grillið, bursta vel yfir grindina og tæma fitubakka undir grillinu. ATH! Ekki grilla upp við rúður (þær geta brotnað við hitann). Mikilvægt er að fylgja vel með grilli í notkun vegna brunahættu.
Gas
Við hvert hús eru 2 gaskútar. Ef báðir kútar eru tómir þarf að hafa samband við umsjónarmann á opnunartíma.
Sjónvarp
Í hverju húsi er sjónvarp og myndlykill. Í sumum húsum er búið að koma fyrir snjallsjónvörpum (er þá myndlykill óþarfur). Snjallsjónvarpið býður upp á möguleika á að tengjast helstu streymisveitum á borð við Netflix, Youtube eða aðra svipaða afþreyingu. Einnig er hægt að horfa á sjónvarpsútsendingar RÚV í gegnum snjallforrit. Myndlykill býður upp á að hægt sé að horfa á sjónvarpsútsendingar RÚV ásamt almennum útvarpsútsendingum.
Sorphirða
Leigutakar eru beðnir um að skilja ekki eftir rusl utandyra til að koma í veg fyrir að meindýr sæki í það. Munið að flokka og skila rusli í ruslagáma sem eru staðsettir við þjónustuhús á svæðinu. Ruslagámar eru staðsettir á plani við þjónustuhús.
Snjór/Snjómokstur
Snjómokstur á aðalleiðum er á vegum Orlofsbúðanna en leigutakar þurfa hins vegar sjálfir að moka stíga heim að húsum, og af þöllum gerist þess þörf. Á veturna eru snjóskóflur geymdar úti á þöllum við húsin.
Rafmagnsbílar
Vegna mikillar brunahættu má alls ekki hlaða rafbíla við bústaðinn, raflagnir hans og tenglar ráða ekki við slíka hleðslu. Hleðslustöðvar er að finna við þjónustuhús eða í Hveragerði.
Ró á svæðinu
Samkvæmt reglum orlofsbyggðarinnar á að vera komin ró á svæðið kl. 22:00. Sé um alvarleg atvik að ræða er rétt að hafa samband við Lögregluna á Selfossi í síma 444 2000 og hringja í vaktsíma umsjónarmanns. Það er nauðsynlegt svo umsjónarmenn geti brugðist við.

5. Öryggismál

Öryggisbúnaður
Mikilvægt er að kynna sér staðsetningu helsta öryggisbúnaðar, svo sem slökkvítækis, reykskynjara, eldvarnarteppis og sjúkrakassa. Einnig er gagnlegt að kynna sér flóttaleiðir bæði inni í húsinu og út af svæðinu, ásamt því hver söfnunarpunktar eru staðsettir. Þetta auðveldar örugg viðbrögð ef neyðarástand skapast. Reykskynjarar eru að lágmarki tveir í hverju húsi. Eldvarnarteppi eru á vegg í eldhúsi. Slökkvítæki er staðsett í forstofu. Sjúkrakassi er staðsettur í skáp í eldhúsi. Fyrir neyðartilfelli vegna skyndilegra veikinda eða slysa hafið samband við 1-1-2.
Fastanúmer
Fastanúmer er fasteignanúmer mannvirkisins sem skráð er í fasteignaskrá og gefur til kynna staðsetningu á mannvirkinu og er mikilvægur þáttur fyrir viðbragðsaðila. Skiltin eru sýnileg á utanverðu þar sem aðkoma er að húsinu.
Slökkvítæki
Léttvatnstæki eru slökkvibúnaður sem kæfir eld með finni vatnsúðun sem dregur úr hita og súrefni. Þau henta vel á elda í fóstum efnum (A), eldfimum vökum (B) og einnig elda í matarolíu og fitu (F).
Eldvarnarteppi
Eldvarnarteppi er slökkvibúnaður sem kæfir eld með því að loka loga inni og svipta hann súrefni. Það er notað meðal annars til að slökkva eld í potti eða pönnu og einnig þegar kviknar í fötum, þar sem teppinu er vafið þétt utan um einstakling til að kæfa eldinn. Eldvarnarteppi er losað úr hulstri, breitt út og lagt yfir loga þar til eldurinn kafnar, og síðan haldið kyrru þar til hættu er liðin hjá. Eldvarnarteppi er staðsett á vegg í eldhúsi nærri helluborði.
Reykskynjarar
Reykskynjarar greina reyk snemma og vara við hættu með háværum viðvörunarhljóðum. Þeir auka öryggi með því að gefa forskot á að bregðast við eldi. Í hverju húsi eru að minnsta kosti tveir skynjarar og ráðlegt er að prófa þá við komu til að tryggja að þeir virki rétt.
Sjúkrakassi
Sjúkrakassi inniheldur grunnbúnað (plástra, skæri, sárabindi o.s.frv.) og er ætlaður til að veita fyrstu hjálp við minni meiðsl. Til þess að tryggja að hann sé fullbúinn og til taks er vinsamlegast beðið um að umsjónarmaður sé látið vita ef eitthvað vantar, til dæmis með því að skrá það í orðsendingu til umsjónarmanns. Sé um alvarlegri meiðsl að ræða þarf að leita aðstoðar hjá heilbrigðisstarfsfólki, til dæmis á heilsugæslu eða sjúkrahúsi.
Flóttaleiðir
Flóttaleiðir í sumarbústaðnum eru tvær: aðalhurð og svalahurð. Mikilvægt er að halda þessum leiðum greiðum og lausum við hindranir svo hægt sé að yfirgefa húsið hratt ef neyð kemur upp. Flóttaleiðir út af svæðinu skulu vera auðfarnar og skýrt merktar þannig að hægt sé að komast hratt á öruggan stað ef neyð skapast. Mikilvægt er að halda þessum leiðum opnum og lausum við hindranir á öllum tímum. Flóttaleiðir út af svæðinu eru aðalgötur og stígar sem liggja frá svæðinu og leiða til öruggra staða. Við rýmingu er fylgt flóttaleiðunum út af svæðinu og haldið áfram að söfnunarpunkti þar sem hægt er að staðfesta að allir hafi komist út. Gestum er ráðlagt að kynna sér flóttaleiðir við komu til að tryggja örugga rýmingu ef eldur eða önnur hætta skapast.

6. Heiti potturinn

Heiti potturinn
Heiti potturinn er hluti af búnaðinum sem fylgir húsinu og mikilvægt er að ganga vel um hann. Sérstaklega þarf að huga að lokinu, fara varlega með það og tryggja að það sé rétt fest þegar potturinn er í notkun. Fara skal eftir leiðbeiningum um notkun, áfyllingu og þrif. Leigutakar bera ábyrgð á þrifum pottins við brottför og umsjónarmaður yfirfer hann á milli leiga.
Lok
Lokin á heitu pottunum eru viðkvæm og því mikilvægt að passa að þau skellist ekki niður þar sem það getur valdið skemmdum. Forðist einnig að klifra eða stíga á lokin af sömu ástæðu. Einnig er mikilvægt að tryggja að lokin séu kyrrfilega fest þegar þau eru opin, þannig að þau falli ekki óvænt niður og valdi slysum eða tjóni.
Stillingar fyrir heitan pott
Stýribúnaður fyrir heita pottinn er staðsettur á vegg við pottinn. Þar má finna allar helstu upplýsingar um áfyllingu, tæmingu og þrif á pottinum. Í pottinum er sírennsli, sem þýðir að vatnið endurnýjar sig reglulega til að tryggja hreinlæti og góð vatnsgæði. Athugið: Ef potturinn hefur verið tæmdur getur það tekið allt að 4–5 klukkustundir að fylla hann að fullu og ná aftur kjörhitastigi. Gott er því að gera ráð fyrir þessum tíma áður en potturinn er notaður að nýju. Munið að athuga hitastig í pottinum með hendinni áður en farið er ofan í til að tryggja að vatnið sé passlega heitt.
Vatnið í pottinum
Vegna náttúrulegs efnainnhalds í jarðhitavatninu í Ölfusi getur myndast froða, filma eða smávægilegar útfellingar í heitum potti. Þetta stafar af háu hlutfalli steinefna og annarra náttúrulegra efna í vatninu. Slík myndun er algeng og eðlileg og hefur ekki áhrif á hreinlæti eða vatnsgæði. Þetta eru því ekki óhreinindi, heldur náttúruleg afleiðing af efnasamsetningu vatnsins og samspili þess við hita og notkun.
Þrif á potti
Leigutakar bera ábyrgð á að þrifa heita pottinn að lokinni dvöl, sem hluti af almennum þrifum. Leiðbeiningar um þrif, tæmingu og áfyllingu er að finna á vegg við pottinn. Umsjónarmaður fer jafnframt yfir heita pottinn á milli hverrar leigu til að tryggja rétt ástand, vatnsgæði og hreinlæti. Þessi yfirferð kemur þó ekki í stað þrifa hálfu leigutaka.
Hitastig pottins yfir vetrarmánuði
Á veturna, þegar mikill kuldi gengur yfir, getur verið erfitt að tryggja stöðugt eða fullkomit kjörhitastig í heita pottinum. Upphitun tekur lengri tíma í frosti og hitastig vatnsins getur sveiflast eftir veðurskilyrðum, þar sem náttúruaflin hafa áhrif á hitaleiðni og endurnýjun vatns. Þetta telst eðlilegt við vetraraðstæður og er ekki hægt að koma alveg í veg fyrir. Það er því ekki alltaf hægt að tryggja kjörhitastig í pottinum þegar aðstæður eru mjög kaldar, þar sem veðurfarið hefur bein áhrif á upphitun og hitastig vatnsins.

7. Við brottför

Við brottför
Við brottför ber gestum að ganga vel frá húsinu og fylgja þeim leiðbeiningum sem gilda um frágang og þrif. Markmiðið er að skilja húsið í góðu ástandi fyrir næstu gesti og eru eftirfarandi atriði liður í því sem er krafist við brottför.
Helstu atriði við brottför
Leigutakar bera ábyrgð á að hús sé þrifið samkvæmt reglum. Þrífa skal húsið, útsviðið, grillið og heita pottinn. Fara skal eftir gátlista um þrif. Ganga skal úr skugga um að sjónvarp sé stillt á ensku og að fjarstýringar séu til staðar. Hitastillir á vegg þarf að vera stilltur á 20°C. Alls ekki taka hitann af húsinu. Muna eftir að loka öllum gluggum, innrihurðar skildar eftir opnar og útidyrahurðir læstar. Muna að ganga frá útihúsgögnum og grilli á palli. Upplýsingamappan er skilin eftir á eldhúsborði. Skráið í orðsendingu til umsjónarmanns ef eitthvað er bilað eða þarfnast úrbóta. Óhreinar tuskur skal skilja eftir í poka eða í skúrningarfötum við útidyrahurð. Ef þrif eru ekki fullnægjandi verður innheimt þrifagjald af leigutaka.
Að lokum
Við vonum að dvölin hafi uppfyllt væntingar og skilað góðri upplifun. Það væri okkur ánægja að fá ykkur aftur í framtíðinni. — Orlofsbyggðin Ölfusborgir

Aðgengi fyrir fatlaða

Upplýsingar um aðgengi
Upplýsingar um aðgengi að húsunum fást hjá aðildarfélögum.

Fannstu ekki það sem þig vantaði?

Hafðu samband við þjónustumiðstöðina.

Hafa samband