Saga Ölfusborga

Tímalína Ölfusborga

Saga Ölfusborga á rætur að rekja til réttindabaráttu launafólks um orlof. Hér er sagan rakin frá setningu orlofslaganna árið 1943, í gegnum uppbyggingu og afhendingu Ölfusborga og áfram til dagsins í dag.

  1. 1943

    10. febrúar 1943

    Lög um orlof launafólks

    Lög um orlof launafólks eru samþykkt á Alþingi, í kjölfar þess að ákvæði um orlofsrétt rötuðu inn í almenna kjarasamninga. Í fyrstu var miðað við tólf launaða orlofsdaga en þeim átti eftir að fjölga á næstu árum.

    Blaðaumfjöllun um lög um orlof árið 1943
  2. 1957

    Framlag ríkisins

    Ríkisstjórnin veitti á árunum 1957 og 1958 nokkuð fé í orlofshúsasjóð verkalýðshreyfingarinnar. Rétt fyrir ríkisstjórnarskipti í lok árs 1958 gaf Hannibal Valdimarsson félagsmálaráðherra, sem jafnframt gegndi starfi forseta ASÍ, loforð fyrir landi undir orlofshúsabyggð.

  3. 1962

    Jarðnæði

    Landbúnaðarráðherra lætur ASÍ í té tólf hektara landspildu úr landi Reykja. Undirbúningur að orlofshúsabyggðinni hefst að kappi. Ráðist er í jarðvegsvinnu og Sigvalda Thordarsyni arkitekt falið að hanna húsin. Fyrstu orlofsgestirnir gista á svæðinu í júní 1964.

    Gamalt kort af landi Ölfusborga
  4. 1965

    12. september 1965

    Afhending Ölfusborga

    Orlofsheimilin undir Reykjafjalli í Ölfusi voru afhent Alþýðusambandi Íslands. Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ, veitti byggingunum viðtöku með ræðu, skýrði frá sögu orlofsheimilanna og kunngjörði hið nýja nafn hverfisins — Ölfusborgir.

    Blaðaumfjöllun um opnun Ölfusborga árið 1965
  5. 1966

    Upphaf Ölfusborga

    Ölfusborgir taka til starfa sem orlofsbyggð verkalýðshreyfingarinnar.

  6. 1968

    Menningar- og fræðslumiðstöð alþýðu

    Menningar- og fræðslumiðstöð alþýðu er komið á laggirnar að norrænni fyrirmynd. Meðal helstu viðfangsefna hennar er rekstur Félagsmálaskóla alþýðu, sem ætlað er að þjálfa trúnaðarmenn verkalýðshreyfingarinnar. Um árabil voru Ölfusborgir meginvettvangur þeirrar fræðslu.

    Blaðaumfjöllun um Menningar- og fræðslumiðstöð alþýðu
  7. 1973

    23. janúar 1973

    Eldgos í Heimaey

    Eldgos hefst í Heimaey og allir íbúar Vestmannaeyja neyðast til að flytja upp á fastalandið. Stór hópur fær inni í Ölfusborgum. Verkalýðsfélögin bregðast við með því að leigja Héraðsskólann að Reykjum í eitt sumar fyrir félagsmenn sína.

    Eldgosið í Heimaey árið 1973
  8. 1977

    17. júlí 1977

    Umfjöllun í Þjóðviljanum

    „Skammt fyrir austan Hveragerði gefur að líta húsaþyrpingu uppi í hlíðinni. Á grænu túni standa 36 sérkennileg hús og um byggðina miðja rennur lækur og myndar foss í brattanum. Þetta eru orlofsheimili Alþýðusambands Íslands.“

    Umfjöllun Þjóðviljans um Ölfusborgir árið 1977
  9. 1988

    Loftmynd 1988

    Árið 1988 flaug Mats Wibe Lund yfir borgirnar og sést vel á myndinni hve skammt allur trjágróður er kominn á veg. Húsin eru öll komin upp.

    Loftmynd af Ölfusborgum árið 1988, Mats Wibe Lund
  10. 2005

    14. september 2005

    40 ára afmæli Ölfusborga

    Þann 14. september var haldið upp á 40 ára afmæli Ölfusborga. Í tilefni af því voru gróðursett tré í veðurblíðunni og gestir nutu góðra veitinga í þjónustumiðstöðinni.

    Frá 40 ára afmæli Ölfusborga árið 2005
  11. 2012

    Loftmynd 2012

    Mats Wibe Lund flaug yfir svæðið árið 2012 og þar er trjágróður kominn vel á veg frá 1988 og nokkur skjólbelti komin til viðbótar.

    Loftmynd af Ölfusborgum árið 2012, Mats Wibe Lund
  12. 2016

    12. nóvember 2016

    50 ára afmæli Ölfusborga

    Þann 12. nóvember 2016 var haldið upp á 50 ára afmæli Ölfusborga. Í því tilefni var afhjúpað söguskilti við klettinn efst á svæðinu. Skiltið hannaði Guðrún Tryggvadóttir listamaður í Ölfusi og Stefán Pálsson sagnfræðingur hélt tölu og fór yfir helstu atriði.

    Frá 50 ára afmæli Ölfusborga árið 2016

Sagan heldur áfram

Saga Ölfusborga endar ekki hér. Svæðið heldur áfram að þróast og taka breytingum, á sama tíma og varðveitt er það sem hefur einkennt Ölfusborgir frá upphafi — kyrrð, náttúra og samvera.

Áttu sögu úr Ölfusborgum?

Við viljum varðveita sögur og minningar sem tengjast Ölfusborgum. Ef þú átt ljósmyndir, frásagnir eða annað efni úr sögu svæðisins viljum við gjarnan heyra frá þér.

Deila sögu eða myndum