Um Ölfusborgir
Orlofsheimili ASÍ undir Reykjafjalli
Ölfusborgir eru rótgróin orlofsbyggð launafólks undir Reykjafjalli í Ölfusi. Svæðið einkennist af gróðursælu umhverfi, kyrrð og nálægð við náttúruna og hefur um áratugaskeið verið vettvangur hvíldar, útivistar og samveru.

Uppruni byggðarinnar
Landbúnaðarráðherra lét ASÍ í té tólf hektara landspildu úr landi Reykja í Ölfusi og þar hófst uppbygging orlofsbyggðarinnar. Sigvalda Thordarsyni arkitekt var falið að hanna húsin og fyrstu orlofsgestirnir dvöldu á svæðinu í júní 1964.
Afhending og nafn
Orlofsheimilin undir Reykjafjalli voru afhent Alþýðusambandi Íslands 12. september 1965. Hannibal Valdimarsson, þáverandi forseti ASÍ, veitti byggðinni viðtöku, rakti sögu orlofsheimilanna og kunngjörði nýtt nafn byggðarinnar — Ölfusborgir.
Fræðslustarf alþýðu
Árið 1968 var Menningar- og fræðslumiðstöð alþýðu komið á laggirnar að norrænni fyrirmynd. Meðal helstu viðfangsefna hennar var rekstur Félagsmálaskóla alþýðu, og um árabil voru Ölfusborgir meginvettvangur þeirrar fræðslu.
Rekstur í dag
Sameignarfélag Ölfusborga annast daglegan rekstur, umsjón og viðhald svæðisins. Þjónustumiðstöð Ölfusborga er í húsi 41 og þar er miðstöð starfseminnar á svæðinu. Hús 37 er í eigu Sameignarfélagsins og er sérstaklega útbúið með bættu aðgengi fyrir hjólastóla. Húsið er leigt út til félagsmanna aðildarfélaga ASÍ og er hluti af þeirri áherslu að sem flestir geti notið dvalar í Ölfusborgum.
