Mats Wibe Lund flaug yfir svæðið árið 2012 og hér er tjrágróður kominn vel á veg frá 1988 og nokkur skjólbelti komin til viðbótar.
Árið 1988 flaug Mats Wibe Lund yfir borgirnar og sést vel á mydinn hve skammt alltur trjágróður er kominn á veg.
Húsin eru öll komin upp.
„Skammt fyrir austan Hverageröi gefur að lita húsaþyrpingu uppi í hiíðinni. Á grænu túni standa 36 sérkennileg hús og um byggðina miðja rennur lækur og myndar foss i brattanum. Þetta eru orlofsheimili Alþýðusambands Islands. Afleggjarinn upp í þetta litla þorp hef ur verið lagður olíumöl og snyrtimennska situr ...
Eldgos hefst í Heimaey og allir íbúar Vestmannaeyja neyðast til að flytja upp á fastalandið. Stór hópur fær inni í Ölfusborgum. Verkalýðsfélögin bregðast við með því að leigja Héraðsskólann að Reykjum í eitt sumar fyrir félagsmenn sína.
Menningar- og fræðslumiðstöð alþýðu er komið á laggirnar að norrænni fyrirmynd. Meðal helstu viðfangsefna hennar er rekstur Félagsmálaskóla alþýðu, sem ætlað er að þjálfa trúnaðarmenn verkalýðshreyfingarinnar. Um árabil voru Ölfusborgir meginvettvangur þeirrar fræðslu.
Oriofsheimilin undir Reykjafjalli í Ölfusi voru afhent Alþýðusambahdl Islands með viðhöf n ki. 3 í gærdag. Hannibal Valdimarsson, forseti A.S.Í. veitti byggingunum viðtöku með ræðu og skýrði frá sögu orlofsheimilanna. Hann kunngjörði hið nýja nafn hverfisins — Ölfusborgir ...
Landbúnaðarráðherra lætur ASÍ í té tólf hektara landspildu úr landi Reykja. Undirbúningur að orlofshúsabyggðinni hefst að kappi. Ráðist er í jarðvegsvinnu og Sigvalda Thordarsyni arkitekt falið að hanna húsin. Fyrstu orlofsgestirnir gista á svæðinu í júní 1964 þótt formleg vígsluathöfn ...
Ríkisstjórnin veitti á árunum 1957 og 1958 nokkuð fé í orlofshúsasjóð verkalýðshreyfingarinnar. Rétt fyrir ríkisstjórnarskipti í lok árs 1958 gaf Hannibal Valdimarsson félagsmálaráðherra, sem jafnframt gegndi starfi forseta ASÍ, loforð fyrir landi undir orlofshúsabyggð. Ákveðið var að koma byggðinni fyrir ...
Lög um orlof launafólks eru samþykkt á Alþingi, í kjölfar þess að ákvæði um orlofsrétt rötuðu inn í almenna kjarasamninga. Í fyrstu var miðið við tólf launaða orlofsdaga en þeim átti eftir að fjölga á næstu árum. Þar með skapaðist ...